fimmtudagur, 31. janúar 2008

Annar ljósku


Mig bráðvantaði nokkurra daga frí í vinnunni en ég þóttist vita að stjórinn myndi ekki taka það í mál.Þá datt mér í hug að hugsanlega myndi hann leyfa mér það ef ég hegðaði mér eins og geðbilaður maður.
Svo að ég brá á það ráð að hanga öfugur í loftinu og gefa frá mér
furðuleg hljóð. Samstarfskona mín - sem er ljóska - spurði mig
hvað
ég væri að gera. Ég sagði henni að ég ætlaði að þykjast vera
ljósapera svo að stjóri héldi að ég væri kexruglaður og gæfi mér nokkurra daga leyfi.
Skömmu síðar birtist stjóri á skrifstofunni og sagði við mig:
"Drottinn
minn, hvað ertu að gera?" Ég sagði honum að ég væri
ljósapera. Hann
sagði: "Þú ert yfir þig stressaður, það fer ekki á milli mála.
Farðu heim
og vertu þar í nokkra daga og reyndu að ná þér." Ég stökk niður og gekk út úr skrifstofunni.
Þegar samstarfskona mín (ljóskan) elti mig spurði stjóri hana hvert hún
væri eiginlega að fara. Hún sagði: "Ég er líka farin heim.
Þú
getur
hreinlega ekki ætlast til þess af mér að ég vinni í þessu myrkri!"

Engin ummæli: